Skólaheimsóknir
Það er alltaf fjör á jólaföstunni hér í húsinu þegar skólabörnin koma í heimsókn. Hann Elfar Logi tók á móti þeim og sagði þeim sögur í sal Listasafnsins en þar er núna jólasýning hússins. Öllum er velkomið að tylla sér í salinn og kíkja á ýmsan fróðleik sem þar er að finna.
Síðustu daga hafa skólabörn úr Grunnskólanum á Ísafirði heimsótt okkur í Safnahúsið. Þar hefur Elfar Logi leikari tekið á móti þeim og frætt þau um hina vestfirsku jólasveina og fleira hyski auk þess að ræða við þau um skötuna og skötuát. Það er alltaf gaman að fá börnin í húsið og þau eru sannarlega áhugasöm um jólasveina!